Leit

10 góð ráð til að auðvelda flutninginn

,,Flytja skal einungis það sem maður hefur þörf fyrir. Ef þú hefur ekki notað hluti í langan tíma, skaltu hugleiða að gefa það til t.d rauða krossinn eða selja það á bland.is”

1.

Gerðu áætlun! Stundum getur verið yfirþyrmandi hvar skal byrja í flutningum. Fyrsta skrefið er að setjast niður og gera áætlun. Það að styðjast við gátlista getur hjálpað til við að koma hlutunum á hreyfingu.  

2.

Vertu viss um að hafa næginlega mikið af pökkunarhlutum til að auðvelda flutninginn. Áður en þú kaupir kassa, límband, plast ofl, áætlaðu þá hversu mikið af kössum þú þarft fyrir hvert herbergi. Ágætt er líta yfir eignina og velta fyrri sér stærðina á þeim hlutum sem þarf að flytja. Hugsanlega þarf mismunandi stærðir af kössum, minni fyrir brothætta hluti o.s.frv. 

3.

Kannaðu hvernig þú ætlar að flytja innbúið. Hvernig flutningsbíl þarftu? Hægt er að taka á leigu sendibíla sem eru undir þeim stærðarmörkum sem gera kröfu um meirapróf bílstjórans en samt nægilega stórir til þess að henta í flesta þá flutninga sem einstaklingar og minni fyrirtæki fást við. Með því að aka sendibílnum sjálfur sparar leigutaki sér umtalsverðan kostnað, en bæði er hægt að leigja bíla í lengri tíma eða einungis hluta úr degi. Einnig er hægt að leigja bíl með burðarmanni.

4.

Hafðu samband við símafyrirtækið þitt varðandi flutning á þjónustunni. Ágætt er að tilkynna um flutninginn með hæfilegum fyrirvara og vera með núverandi símanúmer á eigninni sem verið er að flytja í. Nú væri góður tími til að kanna bestu kjörin á síma og interneti fyrir heimilið. Símafyrirtæki eru oft að bjóða uppá pakkatilboð sem henta þér best. Kannaðu málið!

5.

Geymdu verðmæti á öruggum stað. Oft getur gleymst í flutningum í hvaða kassa ákveðinn hlutur lenti. Passaðu uppá að verðmætir hlutir eins og lyf, lagapappírar og aðrir hlutir sem erfitt er að endurnýja sé pakkað saman í kassa sem þú flytur sjálfur.

6.

Þú þarft að hafa samband við eftirtalda aðila þegar þú flytur:

  • Þjóðskrá: breyta lögheimili:. 
    • Fylla þarf út form á netinu og senda í pósti eða með faxi. (www.thjodskra.is)
  • Orkufyrirtæki:
    • Breyta nöfnum á mælum fyrir heitt vatn og/eða rafmagn ef það er ekki innifalið í leigunni
  • Símafyrirtæki:
    • Flytja síma og breyta heimilisfangi
  • Póstur:
    • Tilkynna póststöð í hverfinu um  flutning eða á netinu (www.postur.is)
  • Bankar:
    • Tilkynna breytt lögheimili
  • Tryggingar:
    • Tilkynna tryggingafélagi breytt aðsetur
  • Skólar og leikskólar:
    • Tilkynna skólayfirvöldum breytt heimilisfang

7.

Flytja skal einungis það sem maður hefur þörf fyrir. Það er erfitt að hugsa út í vorhreingerningu þegar að staðið er í flutningum, en þá myndast kjörin aðstaða til losa sig við hluti sem hafa staðið ónotaðir í marga mánuði eða ár. Ef þú hefur ekki notað hluti í langan tíma, skaltu hugleiða að gefa það til t.d rauða krossinn eða selja það á bland.is

8.

Pakkaðu síðast niður hlutum sem veita þér þægindi. Bókin sem þú ert að lesa fyrir háttinn, uppháhalds kaffibollinn eða aðrirhlutir sem geta verið streitulosandi þegar að staðið er í flutningum. Ef þú átt börn biddu þau þá um að velja sér 1-2 uppáhalds hluti til að hafa með sér á meðan á flutningum stendur.

9.

Farðu yfir bankaviðskiptin. Hafðu samband við þjónustufulltrúann þinn og farðu yfir greiðsluþjónustuna þína eða reikninga í beingreiðslu. Þarf að bæta nýjum reikningum inn eða taka aðra út?

10.

Heima er best. Þrátt fyrir að það getur verið svolítið yfirþyrmandi að flytja er ágætt að sjá fyrir sér nýja heimilið fullklárað. Mundu bara hvað allt erfiðið á eftir að skila sér í að lokum - Þínu nýja heimili !

hringdu


lasathjonustan


bilaleiga akureyrar


Sjóvá


Leiga - 10 góð ráð